Sokkaprjóna námskeið með Prjóneu
Lærðu að prjóna sokka!
Við prjónum saman hæl og lærum hvernig við prjónum svo tá og göngum frá.
Fiskikossahæll (e. Fish lips kiss heel). Þessi hæll passar á alla stærðir sokka, alla grófleika á garni, lykkjufjöldra og hvort sem prjónaður er sokkur frá stroffi eða tá. Förum einnig saman yfir ýmislegt nytsamlegt þegar kemur að sokkaprjóni. Innifalið er Prjóneu sokkauppskrift með íslenskri þýðingu á þessum góða hæl. Hann er með fáa sauma og engar lykkjur sem þarf að taka upp sem gerir hann einstaklega góðan.
Allir nemendur fá uppskriftina, Prjóneusokkar á námskeiðinu.
Mælum með að nota fingering sokkagarn eins og Tough sock frá Dóttir Dyeworks og þarf að vera komin að hælnum þegar komið er á námskeiðið, þú færð sendar leiðbeiningar þegar þú kaupir pláss á námskeiðinu.
Magnea er kennari og þroskaþjálfi. Hún hefur prjónað mikið síðustu fimmtán árin. Hún hefur í tæplega áratug verið með instagrammið Prjónea og deilt þar ýmsu sem viðkemur handavinnu og garni. Sokkaprjón á hug hennar allann og hefur síðustu ár kennt námskeið við ýmis tilefni. Þú getur fundið hana og fylgt henni á Instagram undir @prjonea
ATH: Námskeið fæst ekki endurgeitt