Frí sending innanlands á næsta pósthús er verslað er fyrir 15 þúsund eða meira :)

Jóladagatal 2026 - Þetta klassíska

Jóladagatal 2026 - Þetta klassíska

Regular price
29.900 kr
Sale price
29.900 kr
Tax included.

 

Klassíska aðventudagatal Dottir Dyeworks inniheldur 24x20g hespur (samtals 480g), hver hespa er 85 metrar. Garnið er 75% Merino/25% Nylon og hentar því í mjög fjölbreytt verkefni. Litirnir koma úr öllum áttum og þú veist aldrei hverju þú átt vona á. Mögulega er þetta leiðin til þess að opna augun fyrir nýjum litum. Dagatalið hefur alltaf að geyma 24 nýja liti sem ekki hafa komið fram í litaflóru DD áður en aldrei að vita hvort einhverjir þeirra endi svo í úrvalinu á nýju ári :)

Hverri minihespu er pakkað sér 1-24 og er ætlað til opnunar einn á dag, 1.-24.desember.

Dagatölin verða send út uppúr miðjum nóvember 2026. Sending á pósthús/póstbox innanlands er innifalin í verðinu. 

ATH! ÞAÐ VERÐUR AÐ PANTA DAGATAL SÉR OG ALLS EKKI MEÐ ÖÐRUM VÖRUM, ÞAR SEM UM FORPÖNTUN ER AÐ RÆÐA.